Refund policy
Við leggjum áherslu á gæði varanna okkar og vonum að þú sért ánægð/ur með kaupin. Ef þú þarft samt að skila eða skipta vöru, fylgjum við íslenskum neytendalögum og bjóðum upp á inneignanótu eða skipti.
Hvernig skila/skipti ég vörum?
Til að hefja skil eða skipti þarf að hafa samband við okkur á child@childrvk.is með eftirfarandi upplýsingar:
• Pöntunarnúmer — eða nafn upprunalegs kaupanda ef um gjöf er að ræða
• Nafnið þitt
• Netfang
• Símanúmer
• Ástæða endursendingar / skila / skipta
• Ef óskað er eftir skiptum: hvaða vöru, stærð eða lit þú vilt fá í staðinn
• Ef um skipti er að ræða þarf einnig að taka fram hvaða Dropp-afhendingarstaður hentar þér best
- Eftir að viðskiptavinur hefur sent inn allar umbeðnar upplýsingar vegna skila munum við senda tölvupóst með greiðslubeiðni fyrir sendingarkostnað endursendingar.
- Endursendingarmiði (return label) verður ekki afhentur fyrr en sendingarkostnaður hefur verið greiddur að fullu.
Skil og skipti
Þú hefur 14 daga frá móttöku pöntunar til að tilkynna okkur um skil eða skipti. Varan þarf að vera ónotuð, óþvegin, óskemmd og í upprunalegu ástandi og umbúðum, með öllum merkimiðum á.
Við bjóðum ekki upp á endurgreiðslur, heldur gefum út inneignanótu eða bjóðum skipti, nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á skilakostnaði samkvæmt verðskrá Dropp, nema varan sé gölluð eða röng.
Inneignanótur
Inneignanótur gilda í 1 ár frá útgáfudegi.
Gölluð eða röng vara
Ef þú færð gallaða eða ranga vöru, vinsamlegast hafðu samband við child@childrvk.is strax. Við leysum málið fljótt og greiðum skilakostnað ef um galla eða mistök er að ræða.
Gallaðar vörur falla undir 2 ára lögbundinn kvörtunarrétt samkvæmt íslenskum neytendalögum (lög um neytendakaup).
Vörur sem ekki er hægt að skila
Eftirfarandi vörum er ekki hægt að skila:
• Notuðum eða skemmdum vörum
• Vörum sem eru ekki í upprunalegu ástandi
• Vörum sem ekki er hægt að skila af hreinlætisástæðum (t.d. nærfötum) ef umbúðir hafa verið opnaðar